Fótbolti

Haaland búinn að hrista af sér meiðslin

Hjörvar Ólafsson skrifar
Erling Braut Haaland í leik með Manchester City í vetur.
Erling Braut Haaland í leik með Manchester City í vetur. Vísir/Getty

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir Erling Braut Haaland vera orðinn leikfæran eftir að hafa misst af sannfærandi sigri gegn Liverpool í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla. 

Manchester City mætir Sout­hampt­on í deildinni á St. Mary's síðdegis á morgun. Manchester City er fyrir umferð páskahelgarinnar í öðru sæti deildarinnar, átta stigum á eftir Arsenal sem trónir á toppnum. 

Haaland, sem er að spila á sínu fyrsta keppnistímabili með Manchester City er marka­hæsti leikmaður deild­ar­inn­ar með 28 mörk. 

Norski landsliðsframherjinn hefur skorað 42 mörk í öllum keppnum fyrir Manchester City á leiktíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×