Bandaríkjamenn ekki lengi að sleikja sárin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. september 2023 14:34 Mikal Bridges var stigahæstur á vellinum þegar Bandaríkin lögðu Ítalíu að velli á HM karla í körfubolta. getty/Ezra Acayan Bandaríska karlalandsliðið í körfubolta er komið í undanúrslit á HM eftir stórsigur á Ítalíu í dag, 63-100. Serbar eru einnig komnir í undanúrslit.
Bandaríkjamenn töpuðu fyrir Litáum, 104-110, í seinni leik sínum í milliriðli á HM í fyrradag. Tapið hafði ekki mikil áhrif á bandaríska liðið sem gaf því ítalska engin grið í dag. Bandaríkin voru tíu stigum yfir eftir 1. leikhluta, 14-24, og í hálfleik munaði 22 stigum á liðunum, 24-46. Bandaríska liðið steig svo heldur betur á bensíngjöfina í 3. leikhluta sem það vann, 20-37. Mikal Bridges skoraði 24 stig fyrir Bandaríkin og tók sjö fráköst. Tyrese Haliburton kom næstur með átján stig. Ellefu af tólf leikmönnum bandaríska liðsins komust á blað í dag. Simone Fontecchio skoraði átján stig fyrir Ítalíu. Í undanúrslitunum á föstudaginn mæta Bandaríkin annað hvort Þýskalandi eða Lettlandi. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætir Serbía Kanada eða Slóveníu. Serbar unnu Litáa, 68-87, í fyrri leik dagsins í átta liða úrslitum HM. Bogdan Bogdanovic skoraði 21 stig fyrir serbneska liðið og Filip Petrusev sautján.
HM 2023 í körfubolta Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Stöðvuðu bardaga alblóðugrar Valgerðar Sport Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira