Sport

Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðs­maður allt til enda“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nýkrýndi heimsmeistarinn Daniel Dubois.
Nýkrýndi heimsmeistarinn Daniel Dubois. getty/Richard Pelham

Daniel Dubois fór illa með Anthony Joshua í titilbardaga þeirra í þungavigt á Wembley í gær. Hinn þrautreyndi Joshua átti ekki möguleika gegn Dubios.

Tæplega hundrað þúsund manns voru mættir á Wembley til að fylgjast með bardaga Englendinganna Dubois og Joshua í gær.

Þeir fengu ekki að sjá sérstaklega spennandi viðureign því Dubois var með yfirburði og sigraði Joshua með rothöggi í fimmtu lotu.

Hann tryggði sér þar með IBF heimsmeistaratitilinn sem Oleksandr Usyk gaf frá sér eftir sigurinn á Tyson Fury. Þeir Usyk eiga að mætast aftur í lok árs og talið er að Dubois muni mæta sigurvegaranum úr þeim bardaga.

„Er ykkur ekki skemmt?“ hrópaði Dubois eftir sigurinn í gær við mikinn fögnuð viðstaddra. „Ég er skylmingaþræll. Ég er stríðsmaður allt til enda. Ég vil komast á toppinn í þessari íþrótt.“

Joshua var niðurlútur eftir tapið en hrósaði Dubois fyrir góða frammistöðu í bardaganum.

„Ég mætti hröðum og beittum andstæðingi. Ég gerði fullt af mistökum,“ sagði Joshua.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×