Lést eftir að hafa fallið í Hlauptungufoss

Erlendur ferðamaður lést eftir að hafa fallið í Hlauptungufoss í Bláskógabyggð í dag. Lögreglu barst tilkynning um að maður hefði fallið í fossinn sem er í Brúará um klukkan eitt í dag. Tvær þyrlur landhelgisgæslunnar var send á svæðið með köfurum auk þess sem björgunarsveitarfólk leitaði mannsins.

6
00:48

Vinsælt í flokknum Fréttir