Menning

Tilboð á hljóðfærum

Nú stendur yfir tilboð á hljóðfærum í versluninni Gítarnum að Stórhöfða 27. Í versluninni er yfirleitt reynt að vera með tilboð sem þessi reglulega og rík áhersla er lögð á gott verð á hljóðfærum. Þetta tilboð gildir meðan birgðir endast en verslunin á einmitt vona á nýrri sendingu á næstu dögum. Á tilboðinu er til dæmis hægt að fá rafmagnsgítarsett á 29.900 krónur staðgreitt en það inniheldur rafmagnsgítar, magnara, poka, ól, snúru, stilli og aukastrengjasett. Einnig er hægt að fá söngkerfi frá 59.900 krónum, trommusett frá 49.900 krónum staðgreitt og klassíska gítara frá 9.900 krónum staðgreitt. Auk þess eru mörg önnur hljóðfæri á tilboði eins og til dæmis rafmagnspíanó og munnhörpur. Verslunin er með heimasíðuna www.gitarinn.is.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×