Menning

Útsölur á sumarfatnaði

Sumarfatnaður sem kom til landsins í vor er nú víða kominn á útsölur þótt enn lifi vonandi mikið eftir af íslenska sumrinu. Sama er að segja um ýmiss konar fylgihluti. Skór í Ecco, töskur í Drangey og ítölsk barnaföt í Iana á Laugavegi og cakewalk í Firðinum eru meðal þess sem auglýst er á niðursettu verði þessa dagana. Fjölmargar kvefataverslanir hafa einnig lækkað verðið. Nefna má Feminin í Bæjarlind, Verðlistann Laugalæk, Fataprýði í Glæsibæ, Companys í Kringlunni, Bernharð Laxdal í Kjörgarði, Hrafnhildi við Engjateig, Tískuverslunina Guðrúnu við Rauðarárstíg, Topphúsið í Mörkinni, CM á Laugavegi og Max Mara á Hverfisgötu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×