Menning

Miðinn á 29.900 krónur

Farið verður að selja dýrustu aðgöngumiða á tónleika hérlendis til þessa á föstudaginn þegar forsala hefst á tónleika tenórsins José Carreras sem haldnir verða í Háskólabíói 5. mars. Miðar á dýrasta stað eiga að kosta 29.900 krónur stykkið sem er fimm þúsund krónum dýrara en á tónleika Carreras í Laugardalshöllinni árið 2001. Þrátt fyrir hæsta miðaverð í Íslandssögunni fram að því var húsfyllir, eða 2,900 manns, en nú komast aðeins 900 manns á tónleikana.

Carreras er fæddur árið 1946 og byrjaði mjög ungur að syngja. Hann náði fljótt ótrúlegum árangri en árið 1987 greindist hann með hvítblæði og var um tíma vart hugað líf. Á meðan á meðferðinni við því stóð varð til hugmyndin um tenórana þrjá - Carreras, Placido Domingo og Luciano Pavarotti - en þeir höfðu áður barist um toppsæti tenóralistans. Skemmst er frá því að segja að þeir slógu í gegn og náði hylli þeirra langt út fyrir raðir óperuunnenda, enda er talið að þetta framtak þeirra sé langáhrifaríkasta auglýsing sem óperuheimurinn hefur fengið í áratugi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×