Sport

14. sigurleikur Miami í röð

Miami Heat vann fjórtánda leik sinn í röð, sem er félagsmet í NBA-deildinni í körfubolta, í gærkvöldi. Miami skellti nýliðum Charlotte Bobcats 113-90. Dwyane Wade skoraði 26 stig og átti níu stoðsendingar. Shaquille O´Neal skoraði 16 stig. Miami er með bestan árangur í austurdeildinni með 25 sigurleiki en aðeins sjö tapleiki. Richard Jefferson skoraði 17 stig og Vince Carter 16 þegar New Jersey Nets vann grannaslaginn gegn New York Knicks 93-87. Stephon Marbury skoraði 31 stig fyrir Knicks. Memphis Grizzlies lögðu Minnesota Timberwolves að velli 104-95. Pau Gasol skoraði 23 stig fyrir Memphis sem vann þriðja leik sinn í röð. Kevin Garnett skoraði 30 stig og tók 10 fráköst fyrir Timburúlfana. Chicago Bulls bar sigurorð af Orlando Magic 105-90. Portland Trailblazers vann sannfærandi sigur á Golden State 97-88, Shareef Abdur-Rahim skoraði 26 stig fyrir Portland en liðið tapaði með 34 stigum á föstudag gegn San Antonio.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×