Sport

Cleveland Cavaliers selt

Dan nokkur Gilbert hefur fest kaup á NBA-liðinu Cleveland Cavaliers. Gilbert, sem er upphafsmaður veðréttindafyrirtækisins Quicken Loans, keypti Cavaliers af bræðrunum Gordon og George Gund fyrir rúmlega 23 milljarða íslenskra króna. Þess má geta að bræðurnir keyptu Cavaliers árið 1983 fyrir 1,2 milljarða en eftir að stórstjarnan LeBron James kom til liðsins hefur rauk verðmæti Cavaliers upp úr öllu valdi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×