Sport

McGrady ekki með gegn Magic

Tracy McGrady gat ekki leikið með Houston Rockets er liðið tók á móti Orlando Magic í fyrrinótt í NBA-körfuboltanum. McGrady, sem lék með Magic í fjögur ár, var fjarverandi af persónulegum ástæðum. Það kom þó ekki að sök því Rockets vann örugglega, 89-78. Yao Ming var stigahæstur heimamanna með 22 stig og tók 10 fráköst en Steve Francis skoraði 23 stig, tók 10 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir gestina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×