Sport

Nash með 17 stoðsendingar

Leikstjórnandinn Steve Nash átti ekki í miklum vandræðum með að finna samherja sína í Phoenix Suns er liðið mætti Milwaukee Bucks í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Nash gaf 17 stoðsendingar, skoraði 21 stig, tók 6 fráköst og stal þremur boltum en Suns bar sigur úr býtum, 121-115. "Ég er bara að reyna að búa eitthvað til fyrir mína menn," sagði Nash. Michael Redd var stigahæstur í liði Bucks með 27 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×