Sport

Carter yfir 10 þúsund stig skoruð

Vince Carter skoraði 43 stig þegar New Jersey Nets lagði Philadelphia 76ers, 107-97, í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Með framlaginu komst Carter yfir 10 þúsund stig skoruð á ferlinum en hann er 41. NBA-leikmaðurinn sem nær þessu afreki. Þetta var annar leikurinn í röð sem Carter skorar yfir 40 stig. "Við eigum bjarta framtíð með hann innanborðs og vonandi gerir fólk sér grein fyrir því."sagði Jason Kidd, samherji Carter. Sjálfur sagðist Carter ekkert hafa tekið eftir þessu. "Þegar mér var tilkynnt þetta sagði ég: Vinnum þá leikinn!" sagði Carter.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×