Sport

Helena með tvöfalda þrennu

Helena Sverrisdóttir náði tvöfaldri þrennu í 75-82 sigri Hauka á ÍS í Kennaraháskólanum í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Helena var með 22 stig, 13 stoðsendingar og 10 fráköst í leiknum en Ebony Shaw var engu síðri með 27 stig og 16 fráköst. Með sigrinum eru Haukastúlkur farnar að blanda sér í toppbaráttuna í deildinni en þær hafa unnið fjóra af sex leikjum sínum í deildinni eftir áramót. Signý Hermannsdóttir var með 17 stig og 10 fráköst hjá ÍS, Alda Leif Jónsdóttir bætti við 16 stigum, 6 stoðsendingum og 5 stolnum boltum og Stella Rún Kristjánsdóttir var með 16 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×