Sport

Óvæntur sigur Wizards á Spurs

San Antonio Spurs, sem er með besta vinningshlutfallið í NBA-deildinni í körfuknattleik, tapaði fyrir Washington Wizards, 95-87, í nótt. Los Angeles Lakers lögðu New Jersey Nets með eins stigs mun, 104-103, en Lakers léku án Kobes Bryants. Miami Heat vann New York Knicks 116-110 þar sem Dwayne Wade skoraði 30 stig fyrir Miami og Shaquille O´Neal 16 og hirti auk þess 13 fráköst. 38 stig frá Allen Iverson fyrir Philadelphia dugðu skammt því 76ers töpuðu fyrir Memphis Grizzlies, 98-95. Þá vann Boston Los Angeles Clippers 94-89.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×