Sport

Saunders rekinn frá Minnesota

Forráðamenn Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni ráku í gær aðalþjálfara liðsins, Flip Saunders, en Saunders hefur þjálfað Minnesota síðan 1995, nær allar götur síðan félagið var stofnað. Forráðamenn Wolves misstu þolinmæðina þegar liðið, sem komst í úrslt Vesturdeildarinnar í fyrra, tapaði með 18 stigum fyrir Utah Jazz í fyrrinótt. Kevin McHale, framkvæmdastjóri Timberwolves sem gerði garðinn frægan með Boston Celtics á árum áður, mun hlaupa í skarðið sem þjálfari þangað til rétti maðurinn verður fundinn, en nefndir hafa verið til sögunnar Phil Jackson og Sam Mitchell, þjálfari Toronto Raptors.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×