Sport

Erfiðir mótherjar á EM í sumar

Íslenska körfuboltalandsliðið skipað leikmönnum sextán ára og yngri, sem vann það frækna afrek að bera sigur úr býtum í B-deild Evrópukeppninnar síðasta sumar á erfitt verkefni fyrir höndum í A-deildinni á þessu ári en dregið var í riðla í Prag í Tékklandi í gær. Íslenska liðið er í riðli með Rússum, Grikkjum og Króötum, þremur af bestu þjóðum álfunnar, og ljóst að Einar Árni Jóhannsson, þjálfari liðsins, og lærisveinar hans þurfa að vera í sína besta formi þegar riðilinn fer fram í Leon á Spáni næsta sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×