Sport

Bryant aftur með Lakers

Kobe Bryant lék að nýju með Los Angeles Lakers eftir meiðsli. Bryant skoraði 26 stig en það dugði ekki til gegn Cleveland því Lakers tapaði 103-89. Þá vann Chicago Bulls Minnesota 87-83. Kevin McHale stjórnaði Minnesota en Flip Saunders þjálfari var rekinn á laugardag. New York Knicks bar sigurorð af Charlotte 102-99, New Jersey skellti Denver 94-79, Toronto marði sigur á Los Angeles Clippers, 109-106, Sacramento vann Boston 104-100, Orlando lagði New Orleans að velli, 97-94, Indiana vann nauman sigur á Memphis 76-73. Þá lagði Miami San Antonio að velli 96-92. Dirk Nowitski skoraði 31 stig fyrir Dallas þegar liðið bar sigurorð af Seattle, 95-92, og Phoenix lagði Golden State 106-102 eftir framlengingu og loks marði Houston sigur á Portland, 81-80.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×