Sport

Snæfell sigraði á Ísafirði

Einn leikur fór fram í Intersportdeildinni í kvöld er Snæfell heimsótti KFÍ á Ísafirði. Gestirnir leiddu með þrem stigum í hálfleik, 49-46, og unnu að lokum 13 stiga sigur, 93-80. Michael Ames var stigahæstur í liði Snæfells með 21 stig og Calvin Clemmons var með 18. Pálmi Sigurgeirsson átti fínan leik og skoraði 15 stig, Helgi Guðmundsson skoraði 12m Hlynur Bæringsson 11 og Sigurður Þorvaldsson 10. Hjá KFÍ var Joshua Helm langatkvæðamestur en hann skoraði 37 stig og tók 16 fráköst. Pétur Sigurðsson átti ágætan leik en hann skoraði 17 stig og Tom Hull endaði leikinn með 11. Baldur Jónasson átti síðan fína spretti en hann skoraði 11 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×