Sport

Anthony verðmætastur

Carmelo Anthony, Denver Nuggets, var valinn verðmætasti leikmaður nýliðaleiks NBA-stjörnuhelgarinnar sem fram fór í Denver, Colorado, í nótt. Nýliðaleikurinn er viðureign nýliða yfirstandandi tímabils gegn nýliðum tímabilsins þar á undan. Anthony, sem var í eldra liðinu ásamt ekki ómerkari mönnum en Lebron James og Dwyane Wade, skoraði 31 stig og leiddi lið sitt til 27 stiga sigurs, 133-107. Þessi frammistaða var uppreisn æru fyrir Anthony sem hefur átt erfitt uppdráttar á leiktímabilinu og var til að mynda ekki valinn í sjálfan stjörnuleikinn, sem fram er á aðfaranótt mánudags. Lebron James, Cleveland Cavaliers, var einnig öflugur þrátt fyrir að vera að jafna sig á ökklameiðslum og vera þjakaður af flensu. James skoraði 20 stig en Chris Bosh frá Toronto Raptors setti 26 stig og tók 12 fráköst. Dwyane Wade, Miami Heat, skoraði 12 stig og átti 9 stoðsendingar. Hjá nýliðunum voru leikmenn Boston Celtics, Tony Allen og Al Jefferson, atkvæðamestir með 17 stig, sem og Luol Deng frá Chicago Bulls.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×