Sport

Spennan magnast í Intersport deild

Í kvöld lýkur 19. umferð Intersport deildarinnar í körfubolta karla og toppbaráttan í algleymi enda lítið er eftir af mótinu. Keflvíkingar eru efstir með 2 stiga forystu á Snæfell sem er 4 stigum á undan Njarðvík í 3. sætinu. Njarðvíkingar heimsækja Fjölni í Íþróttamiðstöðina í Grafarvogi, Keflavík tekur á móti Hamar/Selfoss í Reykjanesbæ á meðan Snæfellingar heimsækja ÍR í Seljaskóla. KFÍ mætir KR á Ísafirði og Tindastóll - Skallagrímur eigast við á Sauðárkróki. Allir leikirnir hefjast kl. 19.15. Í gær laugardag hófst 19. umferðin með einum leik. Haukar náðu að lyfta sér upp í 14 stig í 10. sæti eftir 110-85 sigur á Grindavík. Haukar eru nú jafnir Hamar/Selfoss að stigum með 14 og nú 2 stigum á eftir Grindavík í 8. sætinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×