Sport

Njarðvíkingar ráku Kanana

Stjórn körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur hefur sagt upp samningi við bandarísku leikmennina Matt Sayman og Antony Lackey. Hvorugur þeirra leikur því með Njarðvík í síðustu umferðinni í kvöld þegar liðið mætir Haukum. Samkvæmt heimildum er Njarðvík að vinna að því að fá aðra bandaríska leikmenn í stað þeirra Lackey og Sayman. Njarðvíkingar eru óánægðir með framlag þeirra í vetur, Sayman hefur skorað 13,4 stig að meðaltali og Lackey 14,4. Framundan er úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn en ljóst er að einungis íslenskir leikmenn verða á leikskýrslu Njarðvíkinga í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×