Sport

Njarðvík fær nýjan útlending

Lið Njarðvíkur í Úrvalsdeild karla í körfuknattleik hefur fengið til liðs við sig nýjan erlendan leikmann fyrir lokaslaginn í úrslitakeppninni. Sá heitir Alvin Snow og er leikstjórnandi frá Washington Háskólanum í Bandaríkjunum.  Snow hefur leikið í ABA deildinni og verið í æfingabúðum hjá NBA liðum. Leikmaðurinn hefur ekki leikið í Evrópu áður og verður forvitnilegt að sjá hvernig honum tekst til með Njarðvíkingum í lokaslagnum, en þeirra bíður það erfiða verkefni að fara inn í úrslitakeppni með nýjan leikstjórnanda.  Liðið sagði upp samningi tveggja erlendra leikmanna sinna fyrir skömmu og því þurfti liðið að finna staðgengil á elleftu stundu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×