Íslendingarnir skipta sköpum 10. mars 2005 00:01
Fjölnir og Skallagrímur unnu sér sæti í Intersportdeildinni í haust en liðin tvö hafa átt góðu gengi að fagna í vetur. Liðin mættust síðast um miðjan febrúar í Borgarnesi og þá hafði Skallagrímur betur, 111-74. Fjölnir vann hins vegar fyrri leikinn, 87-72, og verður fróðlegt að sjá liðin eigast við í úrslitakeppninni. "Þetta er erfiðasta viðureignin að spá í því Skallagrímur virðist hafa eitthvert tak á Fjölni," sagði Einar Bollason körfuboltaspekingur. "Síðan Fjölnir missti Darrell Flake hefur liðið ekki náð sér að fullu. Það er margt sem bendir til þess að Skallagrímur hafi eitthvert tak á Fjölni en akkilesarhæll Fjölnismanna er að þeir hafa treyst of mikið á þessa þrjá útlendinga sína. Það eru góðir leikmenn hjá Fjölni sem verða einfaldlega að axla meiri ábyrgð. Ég hallast nú frekar að því að þessir ungu strákar reki af sér slyðruorðið og vinni í kvöld. Það spilar mikla rullu hjá þeim að liðið er nýorðið bikarmeistari í unglingaflokki þar sem Fjölnismenn lögðu hið firnasterka lið KR í úrslitum. En það má ekki vanmeta Val Ingimundarson, sem er með mikla reynslu og hefur búið til virkilega skemmtilegt lið þar sem hlutverk íslensku leikmannanna stækkar með hverjum leik. Svo er liðið með gríðarlega skemmtilegan bakvörð, Clifton Cook." Í Njarðvík taka heimamenn á móti ÍR-ingum en hvort lið hafði einn sigur í viðureignum liðanna í vetur. "ÍR-ingarnir hafa verið spútniklið síðustu umferðanna í þessu móti og loksins sýnt sínar réttu hliðar. En það er náttúrlega ógjörningur fyrir nokkurn mann að spá í þennan leik því Njarðvíkingarnir eru með nýja útlendinga. Maður spyr sig af hverju Njarðvíkingar voru að ná sér í nýja erlenda leikmenn því liðið sigraði Hauka, útlendingalaust, en Haukarnir eru jú eitt besta lið í langan tíma sem hefur endað utan úrslitakeppninnar. Það er ekki nokkur vafi á því að ef erlendir leikmenn væru bannaðir í deildinni myndi Njarðvík rúlla upp þessu móti. Ef Njarðvíkingar ná að stilla saman sína strengi vinna þeir þennan leik. ÍR-ingarnir gætu þó hæglega bitið frá sér en til þess þarf liðið að stöðva Brenton Birmingham, sem er hjartað og heilinn í þessu Njarðvíkurliði. Hann virðist vera að toppa á réttum tíma. Mannskapurinn í Njarðvík er gríðarlega sterkur og það eru til að mynda landsliðsmenn á bekknum. ÍR er mikið stemmningslið og ef liðið nær stemmningunni í gang geturi allt gerst. Það er það skemmtilegasta við úrslitakeppnina, að ef neðra liðið nær að stela fyrsta leiknum er komin gríðarlega mikil pressa á hitt liðið." sagði Einar Bollason.
Körfubolti Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Arftaki Kristjáns óvænt hættur Handbolti Fleiri fréttir Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Segir að Saliba og Gabriel séu besta miðvarðapar í Evrópu Dusty aftur á toppnum eftir sigur á Kano Arftaki Kristjáns óvænt hættur Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Viðurkennir að hafa sleppt því að spjalda Messi til að fá treyjuna hans Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Sjáðu ótrúlega vörslu Raya og öll mörkin úr Meistaradeildinni „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Dagskráin í dag: Besta kvenna, Formúlu 1, hafnabolti, fótbolti og golf LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Atlético lagði sprækt lið Leipzig „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ Rautt spjald snemma leiks dýrt spaug fyrir Börsunga Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Benfica og Leverkusen byrja á sterkum útisigrum Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Sjá meira