Sport

Keflavík yfir í hálfleik

p Keflvíkingar hafa betur í hálfleik gegn grönnum sínum í Grindavík í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik. Keflvíkingar, sem leika á heimavelli, leiða með 10 stigum, 53-43, en hafa verið yfir nær allan hálfleikinn og náðu mest 16 stiga forystu, 40-24, eftir frábæra byrjun í öðrum leikhluta. Bandaríkjamennirnir Anthony Glover og Nick Bradford eru stigahæstir í liði heimamanna með 16 og 15 stig en Gunnar Einarsson er með 7 stig.. Hjá Grindavík er Darrell Lewis atkvæðamestur með 12 stig, Páll Axel Vilbergsson hefur skorað 10 og Terrell Taylor 9 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×