Sport

Oddaleikir í kvöld

Í kvöld fara fram þrír hreinir úrslitaleikir um sæti í undanúrlitunum í körfuknattleik karla.  ÍR er eina liðið sem hefur tryggt sér þáttöku í annari umferð úrslitakeppninnar með fræknum 2-0 sigri á Njarðvíkingum, en staðan í hinum þremur einvígjunum er 1-1 og oddaleikirnir fara allir fram í kvöld. Deildarmeistarar Keflavíkur taka á móti grönnum sínum úr Grindavík klukkan 20 í Keflavík, Snæfell fær KR í heimsókn í Stykkishólminn, en sá leikur hefst klukkan 20:15 og Skallagrímur úr Borgarnesi heimsækir Fjölnismenn í Grafarvogi klukkan 20. Fylgst verður með öllum leikjunum í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn og er ljóst að áhorfendur eiga von á mikilli körfuboltaveislu í kvöld, enda spennan rafmögnuð í öllum viðureignunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×