Sport

Hálfleikstölur í körfunni

Nú fara fram oddaleikirnir í úrslitakeppni Intersportdeildarinnar í körfuknattleik karla. Í Keflavík hafa heimamenn sjö stiga forskot gegn Grindavík, 44-37, en jafnt var eftir fyrsta leikhluta 23-23. Nick Bradford hefur verði allt í öllu hjá Keflvíkingum og skorað 19 stig og tekið 10 fráköst. Hjá Grindvíkingum er Darrel Lewis stigahæstur með 15 stig. Skallagrímur er tíu stigum yfir gegn Fjölni í Grafavogi í hálfleik, 44-34. Clifton Cook hefur skorað 18 stig, þar af fjórar þriggja stiga körfur, en William Coley er atkvæðamestur hjá heimamönnum með 11 stig. Í Stykkishólmi leiða KR-ingar í hálfleik með eins stigs mun, 49-50.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×