Sport

Davis rekinn frá Magic

Forráðamenn Orlando Magic í NBA-körfuboltanum ákváðu í vikunni að reka þjálfarann Johnny Davis eftir sjötta tapleik liðsins í röð. Ron Ekker, aðstoðarþjálfari liðsins, hefur verið ráðinn í hans stað. "Okkur fannst þörf á nýjum leiðtoga og nýrri stefnu hjá liðinu," sagði John Weisbrod, framkvæmdastjóri Magic. Johnny Davis var ráðinn til Magic í nóvember árið 2003. Liðið vann 51 leik og tapað 84 undir hans stjórn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×