Sport

NBA á Sýn í kvöld

Indiana Pacers tekur á móti Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum í kvöld. Lakers var í heimsókn í Miami í gær þar sem Kobe Bryant og félagar máttu lúta í lægra haldi fyrir heimamönnum, 102-89, en Lakers-menn berjast nú fyrir sæti í úrslitakeppninni. Takist Lakers ekki að bera sigur úr býtum mun fjórða tap liðsins í röð líta dagsins ljós. Pacers hefur átt í vandræðum í vetur og orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Frægt er orðið þegar þrír leikmenn liðsins, Ron Artest, Stephen Jackson og Jermaine O´Neal voru dæmdir í keppnisbann fyrir slagsmál við áhorfendur. O´Neal var reyndar kominn á fullt skrið á nýjan leik en meiddist illa á öxl fyrir skömmu og verður líklega ekkert meira með í vetur. Leikurinn er í beinni útsending á Sýn kl. 00.30



Fleiri fréttir

Sjá meira


×