Sport

Indiana lagði Lakers í nótt

13 leikir voru í NBA-körfuboltanum í gærkvöldi. Indiana sigraði Los Angeles Lakers með 103 stigum gegn 97, en leikurinn var sýndur beint á Sýn í gærkvöldi. Reggie Miller skoraði 39 stig fyrir Indiana sem er það mesta sem hann hefur gert í fjögur ár. Ray Allen skoraði 38 stig þegar Seattle vann Orlando 98-90. Önnur úrslit í gærkvöldi urðu þau að New Jersey vann Utah, New York sigraði Atlanta og Philadelphia vann Cleveland. Allen Iverson skoraði 31 stig fyrir Philadelphia en LeBron James aðeins 16 stig fyrir Cleveland, en í síðustu þremur leikjum var meðaltalið hjá honum 35 stig. Detroit vann Toronto, Memphis sigraði Minnesota, Milwaukee vann Washington, San Antonio lagði Charlotte að velli, New Orleans vann Chicago, Boston skellti Houston, Denver burstaði LA Clippers og Golden State vann Phoenix.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×