Sport

Dómari lét Iverson heyra það

Bakvörðurinn skotglaði, Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers gæti verið í vondum málum eftir að hann reifst við dómara eftir tap fyrir Chicago Bulls á dögunum. Iverson var mjög ósáttur við frammistöðu dómarana í tapinu um daginn og eftir leikinn réðist hann að Marc Davis dómara og reifst við hann.  Iverson hefur sagt að dómarinn hafi sagt orðrétt við sig "ég tek þig og lem þig."  Leikmaðurinn hefur þó viðurkennt að hafa sjálfur látið ýmis miður falleg orð flakka á dómarann og segist líklega hafa átt skilið tæknivillu fyrir ef leikurinn hefði verið í gangi. Hann bíður þess nú að forráðamenn deildarinnar úrskurði í málinu, en vel má vera að ströng aganefndin dæmi hann í bann út af atvikinu, því svona framkoma er mjög illa séð í NBA.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×