Sport

Spurs unnu fyrsta leikinn

San Antonio Spurs sigruðu í nótt Detroit Pistons, 84-69 í fyrsta leik liðanna í úrslitum NBA deildarinnar í körfubolta, en leikið var í San Antonio. Spurs leiða því 1-0 í einvíginu en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður meistari. Annar leikur liðanna fer fram aðfaranótt mánudags nk. og eru viðureignirnar í beinni útsendingu á Sýn. Manu Ginobili skoraði 26 stig fyrir Spurs í nótt, Tim Duncan 24 stig og Tony Parker skoraði 15.  Hjá Pistons var Chauncey Billups stigahæstur með 25 stig en Richard Hamilton með 14 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×