Sport

Arsenal fær Song lánaðan

Arsenal ætlar að fá Alexandre Billong Song á lánssamningi þessa leiktíð. Þessi 18 ára landsliðsmaður frá Kamerún stóð sig vel með félaginu í æfingaferð í Austurríki. Arsene Wenger mun eiga möguleika á að kaupa Song endanlega til félagsins næsta sumar fyrir tæplega þrjár milljónir punda. Song er á mála hjá franska liðinu Bastia en hann er frændi Rigobert Song, sem lék í enska boltanum með West Ham og Liverpool.  Wenger vill skoða þennan unga knattspyrnumann nánar en hann vill athuga hvort hann geti orðið frambærilegur miðjumaður eða farið á kostum í miðri vörninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×