Sport

Valsstúlkur mæta FC United í dag

Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki keppa í dag kl.15:30 við finnska liðið FC United í Evrópukeppninni og verður leikurinn í Finnlandi. Valur hefur forystu í riðlinum eftir stórsigur á norsku meisturunum í Röa í fyrradag. Röa var fyrirfram talið langbesta liðið í riðlinum enda hið besta sem tekur þátt í þessu stigi keppninnar samkvæmt styrkleikaröðun evrópska knattspyrnusambandsins. "Þær voru hundsvekktar að þurfa taka þátt í þessari riðlakeppni," sagði Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Vals við Fréttablaðið. "Við vorum búnar að lesa á heimasíðunni þeirra að þær væru þegar byrjaðar að velta fyrir sér hvenær milliriðlakeppnin færi fram. Þær klárlega vanmátu okkur."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×