Sport

Gylfi í byrjunarliði Leeds

Hermann Hreiðarsson er að vanda í byrjunarliði Charlton sem mætir Wigan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leikir dagsins á Englandi hefjast kl 14. Þá er Heiðar Helguson á varamannabekknum hjá Fulham sem heimsækir Blackburn. Þá vekur athygli að Gylfi Einarsson er í byrjunarliði Leeds sem mætir Wolves í ensku 1. deildinni en það kemur til vegna þess að Eirik Bakke er meiddur. Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Leicester sem sækir Crewe í sömu deild og Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading sem mætir Millwall en Brynjar Björn Gunnarsson er ennþá meiddur og er því ekki í leikmannahóp Reading. Þórður Guðjónsson er á varamannabekk Stoke sem tekur á móti Luton og bróðir hans Bjarni er á varamannabekk Plymouth sem mætir Crystal Palace.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×