Sport

Ilgauskas semur við Cleveland

Litháinn stóri, Zydrunas Ilgauskas hjá Cleveland Cavaliers, hefur undirritað nýjan fimm ára samning við liðið sem færir honum rúmar 50 milljónir dollara í laun. Ilgauskas var með mikla heimþrá þegar hann hóf að leika með liðinu á sínum tíma, en segist nú hvergi annarsstaðar vilja vera ein í Cleveland. "Þegar allt kom til alls, sá ég mig einfaldlega ekki fara til annars liðs og er því mjög ánægður að vera búinn að tryggja framtíð mína hér í Cleveland," sagði miðherjinn, sem tvisvar hefur verið valinn í stjörnulið NBA. Ilgauskas átti í erfiðum meiðslum framan af ferli sínum, en hefur nú verið laus við allt slíkt í fimm ár og er einn af bestu miðherjum deildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×