Sport

Handtökuskipun gefin út á Rodman

Dennis Rodman verður handtekinn af lögreglu ef hann kemur aftur inn í Coloradofylki í Bandaríkjunum. Þetta úrskurðaði dómari í fylkinu í gær, eftir að fyrrum NBA leikmaðurinn var stöðvaður fyrir gáleysislegan akstur í fylkinu á dögunum. Umboðsmaður Rodman segir málið allt byggt á misskilningi og segir að eitt fyrirtækjanna sem styrkja hann hafi þegar gert málið upp. Rodman var stöðvaður á um 150 kílómetra hraða á Lamborghini bílnum sínum í fylkinu fyrir nokkrum vikum, þegar hann tók þátt í kappakstri yfir fylkið sem haldinn var til að styrkja gott málefni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×