Sport

Njarðvík lagði Keflavík

Njarðvíkingar lögðu granna sína í Keflavík á Reykjanesmótinu í körfuknattleik í gærkvöldi, 82-68. Staðan í hálfleik var 43-40 fyrir Njarðvík. Það var hinn nýi leikmaður Njarðvíkur Jeb Ivey sem var stigahæstur allra á vellinum með 33 stig. Auk þess að skora 33 stig, hirti Ivey 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Friðrik Stefánsson var einnig atkvæðamikill í liði Njarðvíkur og skoraði 17 stig og hirti 14 fráköst og Brenton Birmingham skoraði 10 stig og hirti 6 fráköst. Hjá Keflvíkingum var Zlatko Gocevski atkvæðamestur með 14 stig, öll í fyrri hálfleik, en næstir honum komu Magnús Þór Gunnarsson með 13 stig og Jason Kalsow með 11 stig



Fleiri fréttir

Sjá meira


×