Sport

Njarðvíkingar unnu Greifamótið

Úrvalsdeildarlið Njarðvíkur sigraði á Greifamótinu í körfubolta sem fram fór um helgina á Akureyri, þegar liðið vann heimamenn í Þór með 86 stigum gegn 76 í úrslitaleik. Í þriðja sæti á mótinu höfnuðu KRingar, sem unnu stórsigur á Snæfelli, 103-69 í leiknum um þriðja sætið. Þá vann Skallagrímur ÍR 76-66 í leiknum um fimmta sætið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×