Sport

Sprewell í viðræðum við Lakers

Bakvörðurinn Latrell Sprewell, sem leikið hefur með Minnesota Timberwolves undanfarin ár er óðum að reyna að finna sér nýtt lið til að spila með í NBA í vetur, en talið er víst að hann fari frá Minnesota fljótlega. Hann er nú í viðræðum við Los Angeles Lakers í þeirri von um að fá samning og segist ólmur vilja leika við hlið Kobe Bryant. "Ef Sprewell fer frá Minnesota, fer hann til liðs sem hann langar að spila með og hann hefur sagt mér að sér lítist vel á að spila með Lakers við hlið Kobe Bryant og undir stjórn Phil Jackson," sagði umboðsmaður hans og bætti við að hann sætti sig aðeins við að vera í byrjunarliði þess liðs yrði fyrir valinu, en ekki er víst að honum verði að þeirri ósk sinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×