Sport

Risi til Skallagríms

Úrvalsdeildarlið Skallagríms úr Borganesi hefur fengið til liðs við sig risann Chris Manker frá San Diego State-háskólanum fyrir átökin í körfuboltanum í vetur. Manker, 213 sentimetra hár, er 24 ára gamall og leikur í stöðu miðherja. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Manker lipur spilari miðað við hæð og einnig góð þriggja stiga skytta sem er fáheyrt af jafn hávöxnum manni.Þá hafa Borgnesingar gert áframhaldandi samning við Makedónann Jovan Zdravevski, sem lék með þeim í fyrra. Með Zdravevski kemur fyrrverandi samherji hans frá MZT Skopje, leikstjórnandinn Dimitar Karadjovski. Þeir félagar léku með Skallagrími um helgina á æfingamóti á Akureyri og þóttu standa sig vel.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×