Sport

Þjóðverjar í undanúrslit

NordicPhotos/GettyImages
Þjóðverjar tryggðu sér nú rétt í þessu farseðilinn í undanúrslit Evrópumótsins í körfuknattleik, þegar þeir lögðu Slóvena nokkuð örugglega, 76-62. Dirk Nowitzki var atkvæðamestur í liði Þjóðverja með 22 stig og 9 fráköst og þeir Roller og Demirel skoruðu 15 hvor. Hjá Slóvenum voru þeir Brezek og Becirovic atkvæðamestir með 12 stig. Þjóðverjar mæta sigurvegaranum úr viðureign Spánverja og Króata sem fer fram síðar í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×