Sport

Spánverjar lögðu Króata

Spánverjar urðu nú áðan síðasta liðið til að tryggja sig í undanúrslitin í Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik, þegar þeir báru sigurorð af Króötum í æsispennandi framlengdum leik, 101-85. Spænska liðið náði á ævintýralegan hátt að tryggja sér framlengingu á lokasekúndum venjulegs leiktíma og tóku svo öll völd á vellinum í framlengingunni. Juan Carlos Navarro fór á kostum í liði Spánverja og skoraði 36 stig og Fran Vasques skoraði 29 stig og hirti 9 fráköst. Gordan Giricek var atkvæðamestur Króata með 17 stig og 8 fráköst. Spánverjar mæta Þjóðverjum í undanúrslitum mótsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×