Sport

Spánverjar og Þjóðverjar áfram

Spánverjar og Þjóðverjar tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum á Evrópumeistaramótinu í körfubolta í Serbíu og Svartfjallalandi. Spánverjar báru sigurorð af Króötum, 101-85, í framlengdum leik í átta liða úrslitum en staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn, 73-73. Þjóðverjar lögðu Slóvena, 76-62, en Dirk Nowitski var hetja Þjóðverja og skoraði 22 stig. Litháar tryggðu sér sæti á heimsmeistaramótinu í Japan á næsta ári með sigri á Rússum, 89-78.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×