Sport

Grikkir í úrslit á EM í körfu

Grikkir unnu dramatískan sigur á Frökkum í undanúrslitum Evrópukeppninnar í körfuknattleik í Belgrad nú í kvöld. Það var Dimitrios Diamantids sem skoraði sigurkörfu Grikkja í blálokin með þriggja stiga skoti og tryggði sínum mönnum sigur 66-65 og farseðilinn í úrslitin. Grikkir mæta annað hvort Þjóðverjum eða Spánverjum í úrslitum mótsins. Hjá gríska liðinu var Lazaros Papadopoulus stigahæstur með 15 stig, en Tony Parker var stigahæstur í liði Frakka með 20 stig. Síðari undanúrslitaleikurinn fer fram í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×