Sport

Artest og félagar sluppu vel

NordicPhotos/GettyImages
Leikmennirnir þrír sem létu hvað mest til sín taka í slagsmálunum í Detroit í nóvember í fyrra, í leik Detroit og Indiana, sluppu vel þegar mál þeirra var gert upp fyrir rétti á föstudag. Þeir Ron Artest, Jermaine O´Neal og Stephen Jackson, fá eins árs skilorð og þurfa að vinna 60 klukkustundir í samfélagsþjónustu fyrir ólætin. Slagsmálin í Detroit í fyrra voru einhver verstu ólæti sem sést hafa í bandarískri íþróttasögu, en leikmennirnir fengu allir löng keppnisbönn fyrir vikið. Auk skilorðsins og samfélagsþjónustunnar, þurfa þeir hver og einn að greiða 250 dollara sekt, en það er ekki há fjárhæð fyrir þessa menn sem velta tugum og hundruðum milljóna króna á ári hverju fyrir að leika í NBA deildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×