Sport

Cissé ósáttur hjá Liverpool

Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool segir að hann muni ekki sætta sig við að vera á varamannabekknum hjá liðinu í allan vetur og segist muni hugsa sér til hreyfings ef ástandið lagast ekki fljótlega. "Ég virði ákvörðun stjórans og er þolinmóður maður, en ég get alveg sagt að ég ætla ekki að sitja á varamannabekk allt tímabilið," sagði Cissé, sem kom til Liverpool fyrir fjórtán milljónir punda fyrir réttu ári síðan. "Tímabilið er nú bara að byrja, en ef aðstæður breytast ekki mikið á næstunni, getur vel verið að ég hugsi minn gang í desember," sagði Cissé, en vitað er af áhuga franska liðsins Marseille á að fá kappann í sínar raðir, hvort sem um er að ræða kaup eða lánssamning.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×