Sport

Keane hættur með írska landsliðinu

Roy Keane hefur ákveðið að hætta að spila með írska landsliðinu í knattspyrnu í kjölfar þess að liðinu mistókst að vinna sér sæti á HM í Þýskalandi í sumar. Keane, sem er 34 ára gamall, segist ætla að einbeita sér að því að spila með Manchester United það sem eftir er af ferlinum. Keane þakkaði öllum sem höfðu stutt við bakið á honum í gegn um tíðina, en hann spilaði 66 landsleiki fyrir írska liðið. Þetta er raunar í annað sinn sem hann hættir að leika fyrir landsliðið, því hann hætti fyrir HM árið 2002 vegna deilna við þáverandi þjálfara liðsins, en sneri aftur nokkru síðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×