Sport

Wigan lagði Newcastle

Wigan skaust í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með 1-0 sigri á Newcastle og eru nýliðarnir nú með 16 stig eða átta stigum á eftir toppliði Chelsea. Jason Roberts skoraði eina mark leiksins fyrir Wigan sem léku manni færri frá 83. mínútu en þá var Lee McCulloch vikið af velli fyrir ljótt brot. Það stöðvaði þó nýliðana ekki í að leggja Alan Shearer og Michael Owen að velli en þeir léku báðir allan leikinn með Newcastle sem eru í 12. sæti deildarinnar með 9 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×