Sport

Man Utd og Bolton yfir í hálfleik

Bolton er 0-1 yfir gegn Chelsea og Man Utd 0-1 yfir gegn Sunderland þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fimm leikjum sem nú standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Staðan hjá W.B.A. og Arsenal er jöfn 1-1, markalaust er hjá Tottenham og Everton og sömuleiðis hjá Liverpool og Blackburn. Blackburn eru manni færri eftir að Zurab Khizanishvili var rekinn af velli á 33. mínútu. Wayne Rooney skoraði mark Man Utd, Philippe Senderos fyrir Arsenal en fyrrverandi leikmaður Arsenal, Kanu jafnaði fyrir W.B.A. gegn sínum gömlu félögum. Stelios Giannakopoulos skoraði mark Bolton sem leiðir gegn Chelsea í háfleik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×