Sport

Eiður búinn að skora fyrir Chelsea

Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að skora fyrir Chelsea sem er komið í 5-1 gegn Bolton sem leiddi 0-1 í hálfleik. Eiður hefur átt frábæra innkomu eftir að hafa komið inn á af varamannabekknum í hálfleik og hefur auk þess átt þátt í tveimur mörkum Chelsea í leiknum. Mark Eiðs kom á 74. mínútu. Þá er Liverpool komið 1-0 yfir gegn Blackburn og skoraði Djibril Cisse markið beint úr aukaspyrnu á 75. mínútu. Ruud Van Nistelrooy var einnig að koma Man Utd í 2-0 gegn Sunderland. W.B.A. hefur komist yfir gegn Arsenal, 2-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×